<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:12:52" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:14:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:12:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Það er vissulega rétt að inni í sértækum
    útgjaldaráðstöfunum eru að hluta til uppsafnaðar fjárfestingarheimildir.
    Þetta eru heimildir sem hafa ekki gengið út á síðustu árum. Þarna má hins
    vegar líka finna breyttar áherslur þegar kemur að endurhæfingu og það er
    verið að passa betur upp á greiðslur þar. Hér eru líka sparnaðarútgjöld
    sem snúa að fækkun stöðugilda hjá ríkinu og almennu aðhaldi. Það eru líka
    hér útfærslur sem snúa að opinberum innkaupum. Ég vil líka nefna í þessu
    samhengi að við byrjuðum á okkur sjálfum. Þetta er ekki vegferð sem er að
    hefjast í dag. Við byrjuðum á því að fækka ráðuneytum sem var fjölgað í
    tíð og tíma síðustu ríkisstjórnar. Við fórum líka í þá vegferð að fara í
    frekari sameiningar og stefnum að 15% sameiningu stofnana á kjörtímabilinu
    og erum langt komin með það. Reyndar hafa þær sameiningar margar hverjar
    mætt andstöðu í þessum sal. Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það
    er áskorun að koma útgjöldum í 30% af landsframleiðslu eftir mikla ágjöf
    síðustu ára og mikla skuldasöfnun og hallarekstur <ns:bjalla/> en það er
    að takast. Við munum síðan halda áfram með fjárfestingar eins og þörf er á
    en eðlilegt er að heimildir sem ganga ekki út rati ekki inn í
    fjárlagafrumvarpið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>