<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:14:20" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:15:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:14:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir hennar ræðu
    sem var upplýsandi og góð áheyrnar. Úr fjárlagafrumvarpinu 2027, sem við
    ræðum í dag, má lesa að ríkisstjórnin sé að setja fram þrjár pólitískar
    meginlínur: um ábyrgð í ríkisfjármálum, þar sem viðvarandi hallarekstri er
    snúið í afgang; um að vörður sé staðinn um grunnþjónustu með styrkingu
    lykilstoða hennar, sem eru vegakerfið, öryggismál, heilbrigðiskerfið,
    málefni barna og aldraðra og menntakerfið, og um að tekjuöflun sé
    sanngjarnari og lendi þar sem borð er fyrir báru. Það þarf ekki að taka
    það fram hér að hæstv. forsætisráðherra er hagfræðingur að mennt en
    einmitt í því ljósi langar mig að biðja hæstv. ráðherra að fara yfir hvers
    vegna hallalaus fjárlög eru mikilvæg til þess að ná þeim árangri sem að er
    stefnt, þ.e. svo að verðbólga minnki og vextir verði lækkaðir í
    kjölfarið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>