<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:15:21" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:17:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:15:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka þingmanni fyrir spurninguna. Hún er mikilvæg í
    ljósi þess að mjög eðlilega er erfitt að skila hallalausum fjárlögum. Ég
    sé alveg af hverju það hefur ekki gengið á síðustu árum. Ég hef samúð með
    því að hér gekk yfir heimsfaraldur og jarðhræringar en allt of lengi lifðu
    ákveðin útgjöld og útgjaldaheimildir í kerfinu. Það er erfitt að snúa af
    þessari braut, sérstaklega þegar það er mjög lítill vilji til að snúa við
    tekjuhlið og það er lítill vilji til þess að útgjaldahliðin gefi eftir. En
    þetta hefur, eins og ég kom hér áður að og fleiri hafa gert í dag, gert
    það að verkum að á undanförnum árum hefur safnast hér upp gríðarlegt magn
    af skuldum. Þegar síðasta ríkisstjórn hóf sinn feril voru vaxtagreiðslur í
    kringum 50 milljarðar á ári. Í dag eru þær í kringum 168 milljarðar. Og
    auðvitað er tvennt sem hefur gerst í því samhengi. Skuldir hafa aukist og
    vaxtastig hefur vissulega hækkað líka. Ég veit alveg hvernig
    verðbólguþróun hefur verið á þessu ári. Ég geri mér alveg grein fyrir
    vilja minni hlutans til þess að klína því að öllu leyti á verk þessarar
    ríkisstjórnar. Við tökum auðvitað ábyrgð á stöðu efnahagsmála og ég ætla
    hvergi að hvílast fyrr en við erum búin að ná verðbólgu niður í
    ásættanlegt horf. En ég vek þó athygli á töflu og greiningu sem er í
    fjárlögunum sem sýnir skiptingu verðbólgunnar það sem af er ári. Við sjáum
    glögglega á þessu eina og hálfa prósenti sem bættist við á árinu, að um
    70% af því er vegna olíuverðshækkana. Það eru mjög takmörkuð jákvæð áhrif
    af opinberum hækkunum en það breytir því ekki að við þurfum að ráðast í
    þessar aðgerðir vegna þess að annars erum við að greiða tugi milljarða
    króna á ári í vaxtagjöld sem annars myndu renna inn í velferðina. Og á
    sama tíma: Ríkissjóður sem er rekinn í halla í rúmlega 5% verðbólgu og 8%
    vöxtum gerir ekkert annað en að skapa þenslu og það er óábyrgt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>