<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:17:36" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:18:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:17:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir hennar svör
    við mínu andsvari. Ég vík mér þá að annarri spurningu. Samkvæmt greiningu
    þjóðhagsráðs hefur kaupmáttur aukist frá árinu 2024 hjá öllum tekjuhópum,
    í öllum tekjutíundum og óháð stöðu á húsnæðismarkaði. Þessi staðreynd
    þýðir að þrátt fyrir verðbólgu, vaxtastig og erfiða stöðu ríkisfjármála
    hefur tekist að verja og jafnvel auka kaupmátt almennings. Mig langar að
    biðja hæstv. forsætisráðherra til að fara yfir það hve mikið hlutur tekna
    ríkisins er að aukast sem hlutfall af vergri landsframleiðslu ef miðað er
    við forsendur fjárlagafrumvarpsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>