<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:18:23" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:19:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:18:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka fyrir spurninguna og ágæt inngangsorð. Ég held
    að það segi líka allt sem segja þarf um þróun tekna. Eðli málsins
    samkvæmt, í umhverfi þar sem laun og kaupmáttur vaxa, aukast umsvif
    ríkissjóðs. Þess vegna skiptir svo gríðarlega miklu máli þegar við erum að
    tala um tekjur og útgjöld að við skoðum hvort tveggja sem hlutfall af
    landsframleiðslu. Ég held að flestir í þessum sal viti, a.m.k. þeir sem
    setið hafa í fjárlaganefnd, að oftast er það þannig að stærsti
    viðbótarútgjaldaliður hjá ríkissjóði eru laun og verðlagsbætur. Að sama
    skapi er tekjuhliðin að aukast í þessu samhengi í kringum hálft prósent af
    landsframleiðslu. En það er m.a. að falla til vegna þess að það eru aukin
    umsvif í hagkerfinu. Ég geri ekki lítið úr því að við erum með sérstakar
    ráðstafanir sem snúa að bönkunum, sem snúa að baðlónum sem hafa verið með
    undanþágu, ólíkt annarri afþreyingu í landinu, og síðan líka að aðgengi að
    náttúruperlum landsins. En þetta eru þættir sem oft hefur verið rætt um
    hér á Íslandi og ég hygg að góð umræða verði um þá í vetur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>