<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:19:46" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:21:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:19:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir
    framsöguna um sína sýn á þessi fjárlög. Þetta er auðvitað yfirgripsmikil
    umræða sem fer fram í 1. umræðu þannig að mig langaði kannski ekki að
    dvelja sérstaklega við þær tölur sem er verið að benda hér á og þjarka um,
    verðbólgutölurnar og allt í þeim efnum, heldur miklu frekar spyrja hæstv.
    forsætisráðherra um hennar sýn á helstu áskoranir í breiðum og stórum
    dráttum þegar kemur að ríkisfjármálunum. Til að varpa ljósi á það sem ég
    er að velta fyrir mér hef ég t.d. sjálf miklar áhyggjur af þróun
    bótakerfisins, almannatryggingakerfisins í heild, bæði fjölgun bótaþega
    sem hefur verið og auknum fjárhæðum; í þessu fjárlagafrumvarpi erum við að
    tala um aukningu í greiðslu bóta svo um munar. Ég veit að margir berja sér
    á brjóst og telja það jákvæða þróun að verið sé að hækka bætur og annað.
    Að mínu mati er þetta mikið áhyggjuefni og ekki bara fyrir ríkisfjármálin
    heldur allt efnahagslífið, vinnumarkaðinn og þróun hans til lengri tíma.
    Það er nefnilega mjög erfitt að vinda ofan af umfangsmiklu
    almannatryggingakerfi, fjölgun bótaþega, þegar það er einu sinni komið á,
    sérstaklega í ljósi nýlegra breytinga sem gerðar voru á kerfinu sem
    einhvern veginn tryggja það að menn sem einu sinni eru komnir á bætur geti
    nánast verið þar út ævina. Mig langar því að spyrja hæstv.
    forsætisráðherra hvort hún deili þessum áhyggjum með mér og ef ekki þá
    spyr ég kannski hverjar séu helstu áskoranirnar sem hún getur séð til
    næstu tíu ára í efnahagslífi okkar Íslendinga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>