<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:22:04" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:24:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:22:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverða og mikilvæga
    spurningu. Það er alveg rétt að þessir stóru tilfærsluliðir vega
    langþyngst. Margir af þeim, stærsti parturinn af þeim, eru lögbundnir og
    þetta er kannski sá hluti sem oft er erfiðast að eiga við. Í
    fjármálaráðuneytinu á sér hins vegar stað endurmat útgjalda þar sem verið
    er að fara yfir þessa stóru og þungu málaflokka, ef svo má segja, sem
    kannski er erfiðara að gera milli fjárlaga. Ég vil kannski gera greinarmun
    á þeirri ákvörðun okkar að auka upphæð greiðslnanna nú í vor, sem fara inn
    í almannatryggingakerfið, og síðan því hversu margir eru að fara inn í
    kerfið. Við ákváðum að fara þá leið. Þarna er hópur af fólki, þeir sem búa
    oftast við hvað mesta fátækt í örorkubótakerfinu og þeir sem eru á
    strípuðum almannatryggingagreiðslum, fólk sem situr ekki við kjaraborðið,
    að fá meiri hækkun í takt við laun en venjulega. En auðvitað hafa allir
    áhyggjur af því að fólk festist að óþörfu á örorku og ég held að flestir
    geti tekið undir það. Þess vegna er verið að skoða betur samspil
    endurhæfingarlífeyriskerfisins og örorkukerfisins og ég held að allir
    hljóti að geta tekið undir það. Það er lítið upp úr því að hafa til lengri
    tíma að vera fastur á örorku. Þótt það sé borið saman við
    atvinnuleysisbótakerfið þá er það samt þannig að einstaklingur sem ratar
    síðan að lokum út á vinnumarkaðinn er ekki fastur á ígildi lágmarkslauna,
    eða á lægri launum en lágmarkslaunum, allt sitt líf eins og þeir sem eru á
    örorkulífeyri eru restina af sínu lífi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef ég hefði lengri tíma myndi ég tala um það gat sem hefur skapast
    í heilbrigðisútgjöldum og heilbrigðismálum hér á landi, sérstaklega eftir
    óábyrga kjarasamninga, að mínu mati, sem voru gerðir hér tveimur til
    þremur dögum fyrir síðustu kosningar. Þeir hafa gert það að verkum að
    Sjúkratryggingar eru að fara marga milljarða á hverju einasta ári fram
    yfir og heilbrigðisstofnanir margar hverjar skila halla. <ns:bjalla/> Ég
    bíð með það til betri tíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>