<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:24:24" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:25:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:24:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég var öðrum þræði líka að velta því fyrir mér
    hvort hæstv. forsætisráðherra hefði einhverja sýn á það hvernig best væri
    að koma í veg fyrir eða stoppa þá blæðingu sem augljóslega er í þessum
    kerfum hjá okkur. Samkvæmt nýjustu tölum árið 2026 erum við að tala um
    77.500 manns, við erum komin upp í þann fjölda, en inni í því eru
    ellilífeyrisþegar sem eru að þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu. Það
    er auðvitað von okkar allra að þeim fari fækkandi með öflugum
    lífeyrissjóðum og þegar yngri kynslóðir fara að taka ellilífeyri úr sínum
    sjóðum. En eftir standa 35.000 manns sem eru að þiggja örorku- og
    endurhæfingarlífeyri. Hefur forsætisráðherra einhverja sýn á það að stöðva
    þessa blæðingu? Ég spyr af því að ekki má greina neina ætlan eða áform um
    það í fjárlagafrumvarpinu að skoða þetta kerfi <ns:bjalla/> með tilliti
    til þess hvernig hægt er að draga úr útgjöldum í þessum
    málaflokki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>