<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:25:45" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:26:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:25:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Eins og ég sagði áðan þá stendur yfir vinna í
    fjármálaráðuneytinu við að skoða stóra útgjaldaflokka hjá ákveðnum
    ráðuneytum, til að mynda hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þetta er
    bara eitt af því sem tekur tíma fyrir nýja ríkisstjórn að koma sér inn í.
    Ég veit að við erum búin að vera við völd í 20 mánuði. Þú tekur við fyrstu
    fjárlögunum, svo smíðarðu þau næstu og það eru ákveðnir þættir sem hafa
    komið upp í kerfinu, sem að hluta til komu mér á óvart, varðandi þróunina
    á endurhæfingu plús örorku, ef við tökum það saman. Það voru miklar
    væntingar um að nýja kerfið, þar sem meiri áhersla er lögð á endurhæfingu,
    myndi draga úr nýgenginu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að leggjast
    yfir. En ég legg áherslu á að það er ekkert mikið upp úr því að hafa að
    festast inni í örorkubótakerfinu að óþörfu. Þetta eru lágar greiðslur til
    langframa og fólk sem er þarna inni er ekki þarna inni af því að það velur
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil að lokum nefna að ég held að eitt af því besta sem við
    getum gert núna sé að styrkja geðheilsuúrræði. Margir af þeim sem eru að
    koma inn á nýgengi örorku eða endurhæfingar eru ungt fólk sem er að glíma
    við geðrænan vanda eða depurð og er óvinnufært vegna þessa. <ns:bjalla/>
    Það endurspeglast í fyrri fjárlögum og í núverandi fjárlögum
    ríkisstjórnarinnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>