<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:27:11" skst="ÁLÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:29:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:27:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fjárlög snúast um forgangsröðun, um það hvernig
    við öflum tekna, hvernig við verjum þeim og ekki síður um hvers konar
    samfélag við viljum byggja. Eitt af því sem ég fagna sérstaklega í þessu
    fjárlagafrumvarpi er hækkun á sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki. Ég hef
    lengi talað fyrir hækkun bankaskattsins og ítrekað lagt til á Alþingi að
    hann yrði aftur færður í tæp 0,4%, eins og hann var áður en fyrri
    ríkisstjórn ákvað að lækka hann árið 2019. Ef eitthvað er hefði ég viljað
    sjá okkur hækka þennan skatt enn frekar. En hækkun upp í rúm 0,25% er
    vissulega skref í rétta átt, sem ég fagna. Þetta snýst fyrst og fremst um
    sanngjarna skiptingu byrða. Heimilin í landinu hafa fundið rækilega fyrir
    verðbólgu og háum vöxtum undanfarin ár. Þegar tekist er á við það
    mikilvæga verkefni að koma jafnvægi á ríkisfjármálin er eðlilegt að
    breiðari bökin leggi meira af mörkum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sterk ríkisfjármál snúa ekki síst að öryggi og getu samfélagsins
    til að takast á við hið óvænta og við gerð fjárlaga þarf stöðugt að hafa í
    huga að á bak við allar tölur og aðgerðir er fólk. Íslendingar þekkja
    betur en margar aðrar þjóðir hversu skyndilega aðstæður geta breyst.
    Atburðirnir í Grindavík og nágrenni hafa nýverið sýnt okkur það með
    sársaukafullum hætti. Þegar heilt bæjarfélag verður fyrir slíku áfalli
    verður ríkið að hafa bolmagn til að bregðast við. Ríkið verður að hafa
    fjárhagslegt svigrúm og búa yfir stjórnkerfi sem getur brugðist hratt við.
    Þess vegna er mikilvægt að samhliða því að styrkja stöðu ríkissjóðs sé
    lögð áhersla á aukið áfallaþol samfélagsins og að halda áfram þeirri
    mikilvægu vinnu sem fram undan er við endurreisn Grindavíkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þótt fjárlög snúist vissulega um tölur, tekjur og gjöld, hvernig
    við forgangsröðum sameiginlegum fjármunum okkar, segja þau líka sögu um
    hvers konar samfélag við viljum byggja, hvernig við viljum að stjórnvöld
    vinni fyrir fólkið í landinu. Mig langar því að spyrja hæstv.
    forsætisráðherra hvernig hún sjái fyrir sér að þær áherslur sem birtast í
    fjárlagafrumvarpinu á sterkari ríkisfjármál og sanngjarna tekjuöflun
    <ns:bjalla/> geti um leið styrkt getu okkar til að standa með fólki og
    samfélögum þegar óvænt áföll dynja yfir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>