<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:29:32" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:31:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:29:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu af því að það
    er nákvæmlega það sem þetta snýst um. Hér hafa margir komið upp og til að
    mynda talað um þróun kaupmáttar undanfarinna ára. Ég ætla ekki að láta
    eins og það séu ekki einstaklingar í samfélaginu sem ekki hafa upplifað þá
    kaupmáttaraukningu og hér þrífst auðvitað enn fátækt. Hér er fólk sem á
    ekki til hnífs og skeiðar, sem skömm er að, og það finnst okkur öllum. Það
    breytir því ekki að þrátt fyrir ýmislegt sem um hefur verið rætt hér í
    þessari fjárlagaumræðu þá liggur það alveg fyrir, eins og mikið var talað
    um í sumar, að Ísland er á góðum stað. Heilt yfir stöndum við vel. Það er
    lág skuldsetning hér. Það er lágt atvinnuleysi á alþjóðavísu. Hagvöxtur
    hefur verið með ágætum þó að hann hafi ekki verið uppsprengdur eins og
    hann hafði verið, var síðan 0% ef tekið er tillit til fólksfjölgunar. Við
    erum í þeirri stöðu að ef við eigum einhvern tímann að kljúfa þetta gat,
    sem hefur verið langvarandi frá 2019, þá er það núna. Við vitum alveg að
    kreppur eða niðursveiflur eða utanaðkomandi áföll geta komið aftan að
    okkur. Við sjáum það bara í dag ef við lítum til landa í kringum okkur sem
    eru ekki með jafn sterkt velferðarkerfi og við en eru að fá á sig aukna
    pressu vegna varnar- og öryggismála. Það eru fátækari lönd en Ísland sem
    nú eru að greiða hátt í 4–5% af landsframleiðslu í varnar- og öryggistengd
    útgjöld sem við erum ekki að gera. Við sjáum hversu hratt heimurinn gæti
    breyst ef öryggisaðstæður breytast eða ef utanaðkomandi ógn steðjar að
    okkur vegna heilsufars og annars. Í því samhengi nefni ég bara að ég hef
    fullan skilning á þeim erfiðu aðstæðum sem sköpuðust í heimsfaraldri. Þar
    var hallarekstur ríkissjóðs en hann varði bara allt of lengi og við erum
    komin á þann stað að við verðum að fara að loka þessu. Þetta er
    grundvallarástæðan fyrir því að við þurfum að loka þessu gati núna en á
    sama tíma styrkja þá velferð sem til staðar er í kerfinu eftir síðustu tvö
    ár.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>