<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:31:49" skst="ÁLÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:32:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:31:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. forsætisráðherra
    fyrir þessi svör og ég fagna fjárlagafrumvarpi sem setur fólkið í forgang
    en lætur breiðu bökin, sem lengi hefur verið hlíft, bera meiri byrðar, þó
    að mér finnist þær mega vera meiri. Í því samhengi vil ég bara minna á að
    hagnaður bankanna fyrir 2024 var 88 milljarðar og á síðasta ári 94
    milljarðar. Þetta eru 182 milljarðar. Miðað við 400.000 manna samfélag eru
    þetta 455.000 kr. á hvern einstakling eða nær 2 milljónir á eina fjögurra
    manna fjölskyldu. Það er tvennt sem ég er að velta fyrir mér: Hversu miklu
    skiptir að lækka vaxtagreiðslur ríkisins sem nú eru um hálfur milljarður á
    dag? Og svo líka, af því að um þetta hefur verið rætt: Væri það
    réttlætanlegt fyrir bankana með þessar tekjur að velta þessum 0,25%
    bankaskatti yfir á neytendur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>