<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:32:56" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:34:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:32:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Það gefur augaleið að það er ekki réttlætanlegt að bæta
    mikið lengur við skuldir ríkissjóðs nema það komi bara eitthvert
    tilfallandi áfall. Auðvitað vitum við ekki hvernig mál munu þróast á næsta
    ári, til að mynda ef aðstæður breytast ytra. Þetta hefur auðvitað verið
    mikil byrði á ríkissjóði en ég verð reyndar að segja að ég er sjálf á
    þeirri skoðun að stærsta einstaka ástæðan fyrir því að við þurfum að
    stoppa þennan hallarekstur er bara almennt umsvif ríkisins í þenslu. Ég er
    ekki það kreddukennd að ég haldi því fram að ríkið þurfi alltaf og undir
    öllum kringumstæðum að vera yfir núllinu. Ef það er slaki í kerfinu þá er
    allt í lagi að það sé undir því. En undir núverandi kringumstæðum gengur
    það auðvitað ekki upp. Varðandi bankaskattinn þá var hann lækkaður á sínum
    tíma á þeim forsendum að viðskiptavinir myndu njóta þess ávinnings. Sú
    varð ekki raunin. Hér er skýrsla sem var unnin fyrir ráðherra
    Framsóknarflokksins sem bendir réttilega á þetta. <ns:bjalla/> Þess vegna
    finnst mér ekkert óeðlilegt við það að maður geri þá kröfu, þegar hann er
    hækkaður aftur, að ávinningnum sé skilað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>