<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:34:22" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:36:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:34:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 202</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ríkisstjórninni og hæstv. forsætisráðherra
    verður tíðrætt um halla síðastliðinna ára, upp á tæplega 870 milljarða.
    Þar af eru 570 milljarðar vegna Covid og jarðeldanna. Þá eru eftir 300
    milljarðar. Af þeim 300 milljörðum á fimm árum á ríkisstjórn Kristrúnar
    Frostadóttur tæpa 140 milljarða á tveimur árum, svo að það sé nú sagt.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. ráðherra í gær að hún sagði að við
    ættum að huga að stöðunni eins og hún var orðin 2024. Síðan sagði hún:
    Sjáið hvað við höfum gert. En hugum að stöðunni í lok árs 2024. Þá var
    Ísland efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna, fremst í heimi. Það er
    auðvitað metnaðarfullt að koma fram með það hugtak að það þurfi að laga
    Ísland og alveg sérstakt. Við vitum að það þarf að fjárfesta meira, m.a. í
    innviðum. Þá er auðvitað sérstakt að hækka kílómetragjald um 4 milljarða
    en skera framlög til vegagerðar niður um 4,5 milljarða. Það er mjög
    sérstakt. Það er líka sérstakt að lækka fjárfestingu í heild sinni undir
    2% á þessum tíma, þegar við ættum einmitt að vera að fjárfesta
    meira.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra sagði líka í stefnuræðu sinni: Við höfum stöðvað
    stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði. Ég spyr: Hvernig gerði
    ríkisstjórnin það? En afleiðingin er sú að íbúðir seljast núna 80% undir
    auglýstu verði, byggingarleyfum fyrir nýjum íbúðum hefur fækkað um helming
    á tveimur árum og það er 27% vöxtur í atvinnuleysi í byggingariðnaði. Ég
    spyr: Er það til viðbótar niðurskurði á stofnframlögum í fjárlögunum eða
    lækkun á endurgreiðslu við eigið húsnæði sem á að hjálpa til við að byggja
    upp fleiri íbúðir? Er það leiðin til að laga Ísland? Er það leiðin til að
    laga Ísland að skera niður til vegagerðar <ns:bjalla/> en um leið hækka
    tekjurnar sem þeir sem greiða fyrir uppbyggingu á vegunum eiga að greiða
    til ríkissjóðs?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>