<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:36:38" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:38:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:36:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Hér var mörgu varpað fram. Ég þakka hv. þingmanni fyrir
    spurninguna og ætla að vinda mér í þetta. Það kemur skýrt fram í
    fjárlögunum að sú lækkun sem er til samgöngumála er vegna þess að
    tímabundnar fjárheimildir, m.a. vegna vegagerðar við Hvammsvirkjun, falla
    niður. Það er rúm upphæð og í rauninni meiri en sú upphæð sem munar
    lækkuninni á milli ára vegna þess að það er 1,6% aukning í
    samgönguhlutanum. Þetta eru tímabundnar fjárheimildir sem eru að falla
    niður, svo það sé alveg á hreinu. Til viðbótar við það þá er það þannig að
    við höfum komið af stað þessu innviðafélagi. Það er komin 6. gr. heimild
    til að fara í fjármögnun á Fljótagöngum. Það er núna verið að fara í
    undirbúningsframkvæmdir á Fljótagöngum núna á næstu vikum. Þetta er
    nokkurra milljarða króna framkvæmd. Í næstu viku er ég að fara að tala á
    fjárfestadegi sem á að hrinda af stað innkomu aðila og fjárfesta þegar
    kemur að Sundabraut og Hvalfjarðargöngum. Þannig að það er ekki svo að það
    sé samdráttur í samgönguhlutanum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil vekja athygli á því að í síðustu fjármálaáætlun
    ríkisstjórnarinnar sem sat á undan okkur átti viðhaldspeningur að vera í
    kringum 13 milljarðar á næsta ári. Hann er að fara í hátt í 18 milljarðar.
    Það er ekki hægt að stilla því þannig upp að það sé verið að minnka
    fjárframlög til samgönguinnviða í landinu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar verðhækkanir á húsnæði eða verðlækkanir: Hvað höfum
    við gert? Aðgerðir gegn misnotkun á Airbnb, afnám skattalegra hvata til
    íbúasöfnunar, aðgerðir til að auka framboð. Við erum búin að gera
    breytingar á hlutdeildarlánakerfinu og vera með auknar áherslur á fyrstu
    kaupendur. Stærsta einstaka ástæðan fyrir því að stofnframlög eru ekki að
    aukast á milli ára heldur minnka er vegna þess að það eru svo miklar
    uppsafnaðar heimildir í kerfinu, vegna þess að það hafa svo fá
    sveitarfélög í landinu verið tilbúin að veita lóðir í almenna íbúðakerfið,
    vegna þess að þau hafa ekki haft trú á félagslegu húsnæði, og því hefur
    þetta ekki ratað út. Það hefur ekki staðið á ríkissjóði. Það liggur alveg
    fyrir að ef hér kæmi vilyrði, til að mynda frá stærstu sveitarfélögum
    höfuðborgarsvæðisins fyrir því að setja stóraukinn kraft í almenna
    íbúðakerfið, <ns:bjalla/> þá eru það ekki stofnframlögin sem það mun
    stranda á. Það eru margir milljarðar sem sitja fastir í kerfinu vegna þess
    að sveitarfélögin spila ekki með, fyrir utan Reykjavík, mögulega þar til
    fyrir skömmu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>