<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:39:05" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:40:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:39:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Smá leiðréttingar. Í fjármálaáætluninni átti
    fjármagn til viðhalds að fara í 18 milljarða á tímabilinu og ég held að
    það sé 5,5% niðurskurður til Vegagerðarinnar en ekki 1,6% aukning.
    Varðandi Göng og brú er ekki króna í fjárlagafrumvarpinu til að standa
    fyrir framkvæmdum sem eru ekki arðsamar og því miður eru göngin sem á að
    fara í ekki með þeim hætti þannig að það þarf fjárauka til þess að setja
    viðbótarpeninga í það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Þegar menn hækka komugjald á
    heilbrigðisstofnanir, heilsugæsluna, um 100% og breyta lyfjaflokkun þannig
    að sjúklingar borga meira en 500 milljónum meira; og þegar við breytum
    sjúkraþjálfarakerfinu þannig að sjúklingar borga 1,2 milljarða meira —
    hvernig breytist kostnaðarhlutdeild sjúklinga í heilbrigðiskerfinu á vakt
    Samfylkingarinnar? Hvernig hjálpar það til við að létta þrýstingi af
    heimilunum að frysta barnabætur og hafa sömu upphæð og árið 2025 þegar
    allt annað hækkar um 5,2%? Hvernig léttir það þrýstingi af
    heimilunum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>