<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:40:30" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:41:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:40:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég legg bara áherslu á að fjárveitingin til samgangna sé
    skoðuð. Það er 1,6 milljarða aukning ef Hvammsvirkjunarframlagið er tekið
    út. Það er 6. gr. heimild fyrir Fljótagangaframkvæmd og það er verið að
    leita leiða til að semja við Vegagerðina um að koma Fljótagöngum af stað.
    Ég held að við ættum öll hér inni að vera frekar ánægð með það.
    Undirbúningsframkvæmdir eru að hefjast og þær verða fjármagnaðar á vakt
    þessarar ríkisstjórnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi heilbrigðismálin þá fæ ég enga sérstaka ánægju út úr því
    að hækka hér komugjöld á fólk sem hafa ekki hreyfst í 12 ár. Ég stend hins
    vegar frammi fyrir því að vera m.a. með heilbrigðisráðuneytið á minni vakt
    þar sem samið var um stórkostlegar hækkanir í tengslum við sjúkraþjálfun
    og í tengslum við sérfræðilækna sem voru ekki fjármagnaðar á vakt síðustu
    ríkisstjórnar. Ég veit ekki hvort ætlunin hafi verið að skera niður
    þjónustu eða fleyta þessum kostnaði yfir á sjúklinga en staðreynd málsins
    er að ekki var gert ráð fyrir fjárheimildum til að standa undir þessum
    samningum. Þetta er einn af mörgum veikleikum sem við áttuðum okkur á
    komandi inn í þessa ríkisstjórn, <ns:bjalla/> það var ekki búið að gera
    ráð fyrir þessu og þetta sat eftir í kerfinu. Við verðum að sinna þessu
    vegna þess að ekki er vilji til þess að skera niður þessa
    þjónustu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>