<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:42:01" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:43:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:42:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í gær lagði forsætisráðherra áherslu á að
    ríkisstjórnin stæði með fjölskyldum og ungu fólki sem vill eignast
    heimili. Þá hljótum við að skoða hvernig fjárlögin styðja það markmið. Nú
    á að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði úr
    35% í 20%. Ríkissjóður á að fá 3,6 milljarða kr. í viðbót með þessari
    breytingu. Þetta þýðir að það verður dýrara að byggja og það verður dýrara
    að halda íbúðum við. Byggingariðnaðurinn er sveiflukennd grein. Fyrirtækin
    þurfa að taka ákvarðanir um fjárfestingar með margra ára fyrirvara. Þau
    þurfa að geta treyst því að stjórnvöld haldi rekstrarumhverfinu stöðugu. Á
    næstu fimm árum er þörf fyrir rúmar 20.000 íbúðir. Það gerir 4.100 íbúðir
    á ári og þótt tímabundið safnist upp óseldar íbúðir megum við ekki missa
    sjónar á því að áfram þarf að byggja. Ef uppbyggingin fer í frost getur
    það skapað nýjan húsnæðisskort síðar. Ákvarðanir sem teknar eru í dag ráða
    því hvaða íbúðir verða til eftir nokkur ár. Þess vegna eiga stjórnvöld að
    draga úr sveiflunum og þegar hægir á framkvæmdum er sérstaklega mikilvægt
    að bæta ekki við kostnaði sem getur orðið til þess að næsta verkefni fari
    aldrei af stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjálfstæðisflokkurinn vill að fólk og fyrirtæki geti gert áætlanir
    og skipulagt framtíðina og staðið við þær áætlanir. Stöðugt
    rekstrarumhverfi er líka hagsmunamál unga fólksins sem bíður eftir að
    eignast heimili. Hvernig ætlar forsætisráðherra að tryggja áframhaldandi
    uppbyggingu þegar ríkisstjórnin sjálf hækkar kostnaðinn og breytir
    forsendum þeirra sem eiga að byggja framtíðarhúsnæðið?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>