<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:46:25" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:47:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:46:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka forsætisráðherra fyrir svarið.
    Krónutölugjöld eiga almennt að hækka um 5,2% og kílómetragjaldið á að
    hækka um tæp 16%. Þessar hækkanir leggjast ofan á dagleg útgjöld heimila
    og rekstur fyrirtækja um land allt. Forsætisráðherra getur ekki skýlt sér
    á bak við fyrri ríkisstjórn eins og hún gerir hér daglega. Þetta er hennar
    fjárlagafrumvarp. Þetta eru ákvarðanir hennar ríkisstjórnar og hún ber
    ábyrgð á þeim. Ríkisstjórnin biður aðra um að sýna hófsemi til að ná niður
    verðbólgu og hún verður þá að gera sömu kröfu til sjálfrar sín. Hvers
    vegna telur forsætisráðherra rétt að ríkið hækki gjöld sín langt umfram
    verðbólgumarkmið Seðlabankans á sama tíma og hún biðlar til allra annarra
    um að sýna hófsemi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>