<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:47:32" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:48:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:47:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef
    sagt áður frá því að við erum núna í samtali og erum búin að vera í virku
    samtali, reyndar búin að halda, ef við tökum ekki með fundi undirhópa
    heldur bara stýrihópa og þeirra sem eru í framlínunni á vinnumarkaðnum,
    yfir 20 fundi núna með aðilum vinnumarkaðarins í sumar þar sem við höfum
    verið að ræða hinar og þessar útfærslur, m.a. er verið að velta upp
    hugmyndum um gjaldaprósentur. Þetta er bara partur af því samtali sem núna
    er í gangi. Ég sýni því alveg skilning á því að fólk vilji sjá þessi gjöld
    lægri en þau eru. Það breytir því ekki að þegar kemur að kílómetragjaldinu
    þá finnst mér þetta sérstök afgreiðsla. Síðasta ríkisstjórn var hér búin
    að leggja fram fjármálaáætlun þar sem hún gerði ráð fyrir því að á árinu
    2027 yrðu sérstakar greiðslur vegna ökutækja 7,5 milljarðar, ekki þeir 4
    milljarðar sem við erum að leggja til. Inni í því hefði óhjákvæmilegt
    verið að kílómetragjald hefði verið 3,5 milljörðum hærra en okkar. Það var
    ekki vilji til að klára það mál. <ns:bjalla/> Það var ekki kjarkur til að
    klára það mál í síðustu ríkisstjórn þrátt fyrir að hún vissi að vegakerfið
    væri ófjármagnað, en hún var búin að lofa alls konar hlutum út á þau
    vilyrði. <ns:bjalla/> Við verðum að klára þessi mál, sérstaklega ef við
    ætlum að halda betur uppi vegagerð í landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>