<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:49:07" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:50:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:49:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Samfylkingin og hæstv. forsætisráðherra lofuðu að taka
    til í ríkisrekstrinum. Þetta var loforð sem var gefið hér fyrir síðustu
    kosningar. Það átti að bæta þjónustuna með því að gera hana skilvirkari.
    Hæstv. ráðherra lofaði líka að hækka ekki skatta þannig að mig langar bara
    að spyrja beint út: Af hverju er verið að svíkja þetta loforð? Svo langar
    mig líka að spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra styðji jólabónusinn sem
    hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hefur ítrekað sagt að muni verða
    greiddur hér út í desember en hann er ekki að finna í fjárlögum. Því spyr
    ég: Ef hæstv. forsætisráðherra styður þennan jólabónus, af hverju var ekki
    gert ráð fyrir honum í fjárlögunum eða er ekkert að marka þessi fjárlög?
    Að lokum langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún hafi
    ekki áhyggjur af því að krónutöluhækkun upp á 5,2% gjalda verði
    verðbólguhvetjandi og muni auka verðbólguna, eins og gerðist síðast, og af
    hverju er verið að fara að gera nákvæmlega sömu mistökin aftur eða heldur
    hæstv. forsætisráðherra að útkoman verði önnur núna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>