<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:51:00" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:53:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:51:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Ég vek
    athygli á því að af þeim 34 milljörðum á tekjuhlið þá mætti kannski telja
    um 15 milljarða sem snúa að hinu almenna heimili. Já, það eru
    krónutölugjöld þar inni. Í gegnum tíðina hafa krónutölugjöld meira og
    minna fylgt verðlagi. Já, það hefur verið samið um það í kjarasamningum að
    taka þau niður tímabundið þrátt fyrir að við séum reyndar ekki í
    kjarasamningaviðræðum núna, enda er ríkið yfirhöfuð ekki heldur beint
    hluti af þeim viðræðum heldur bara stuðningsaðili. En við erum að skoða
    þetta núna með verkalýðshreyfingunni. Það er ekkert óeðlilegt við að farið
    sé í krónutölubreytingar. Það hafa allar ríkisstjórnir gert í gegnum
    tíðina nema þegar sérstaklega er samið um það, t.d. út frá
    verðbólgumarkmiði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kílómetragjaldið er búið að vera á dagskrá í langan tíma. Það var
    vitað mál með niðurfellingu olíugjaldsins og tilkomu rafbíla að það þyrfti
    að breyta fyrirkomulaginu. Ég er alveg meðvituð um að það eru að verða
    breytingar þarna á þrepunum sem snúa, eins og ég sagði áður, að því að hér
    var innleitt kerfi samhliða kjarasamningum 2019 og samhliða reyndar miklum
    útgjaldaauka líka sem var ekki fjármagnaður sem gerði ráð fyrir að það
    yrði meiri framleiðni í kerfinu en var. Það var enginn framleiðnivöxtur á
    þessu tímabili. Það var ekki innistæða fyrir þessari tekjuskattsbreytingu
    þarna á sínum tíma þannig að það er búið að halda því sem snýr að
    heimilunum í algjöru lágmarki, myndi ég segja, og sérstaklega hefur verið
    hugað að því að þar sem er svigrúm í kerfinu á útgjaldahlið og á tekjuhlið
    sé litið til þeirra staða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég styð jólabónus í desember enda verður hann greiddur út núna í
    desember og það er fjárheimild fyrir því. Það liggur alveg fyrir. Hann
    verður greiddur út í desember og það er bara fullur stuðningur við
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar krónutöluhækkanirnar almennt vil ég samt vekja athygli
    á því, og ég segi það og ítreka enn og aftur, að skoðað sé það graf sem er
    inni í fjárlögunum sem sýnir hvaðan sú verðbólga sem hefur aukist það sem
    af er ári kemur. Þetta eru flugfargjöld. Þetta eru olíufargjöld. Þetta er
    mjög lítill hluti opinberra gjalda. <ns:bjalla/> En, eins og ég segi, við
    erum í samtali núna við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur varðandi
    krónutölugjöldin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>