<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:53:17" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:54:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:53:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Já, við höfum heyrt þá skýringu frá fulltrúum
    ríkisstjórnarinnar að þetta sé ekki skýringin en það virðist enginn
    sammála ríkisstjórninni því það virðist alveg augljóst af öllum greiningum
    og öllum þeim gögnum sem er búið að birta að krónutöluhækkanir
    ríkisstjórnarinnar í fyrra voru meginvaldur verðbólgunnar. Það er alveg
    sama hvað hæstv. ráðherrar koma oft hér upp, þetta eru staðreyndir
    málsins. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra þar sem það stefnir í það að
    afkoman verði nú verri en þið áætluðuð á þessu ári, það er spáð yfir 60
    milljarða halla. Hefur forsætisráðherra áhyggjur af því að
    stöðugleikareglan sé brostin? Og ég ætla að spyrja aftur því að mér þótti
    þetta frekar mikill útúrsnúningur áðan. Hæstv. forsætisráðherra fór í alls
    konar útskýringar á sköttum. Staðreyndin er sú að hæstv. forsætisráðherra
    lofaði að hækka ekki skatta, svo ég spyr aftur: Af hverju er verið að
    svíkja það loforð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>