<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:54:29" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:55:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:54:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég ætla bara að byrja á öfugum enda og benda fólki
    á útspil Samfylkingarinnar þegar kom til að mynda að atvinnumálum. Þar
    vorum við mjög skýr þegar kom að auðlindagjöldum. Þetta er bara okkar
    stefna, m.a., í Samfylkingunni. Þetta stendur í stjórnarsáttmála. Við
    vildum að það væru sanngjarnari auðlindagjöld þegar kæmi að fiskveiðum.
    Við vildum að það væri tekið upp eðlilegt gjald fyrir aðgang erlendra
    ferðamanna að náttúruperlum Íslands í eigu þjóðarinnar. Hér hefur fólk
    getað farið á þessa staði án þess að greiða sérstaklega fyrir það og þetta
    hefur vegið verulega til að mynda að vegakerfinu og svæðunum þarna í kring
    þannig að fyrir okkur er þessi gjaldtaka bara hluti af okkar stefnu og ég
    ítreka það sem ég sagði hérna áðan varðandi önnur gjöld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef Miðflokkurinn ætlar sér að fara í ríkisstjórn og halda því fram
    að hún muni ekki þurfa að hækka eða breyta neinum gjöldum í
    verðbólgusamfélagi Íslands þá veit ég ekki hvar flokkurinn ætlar að byrja
    á niðurskurði í kerfunum okkar. Það liggur alveg fyrir að það hefur hver
    einasta ríkisstjórn þurft að hrófla við krónutölugjöldum upp að einhverju
    marki. <ns:bjalla/> Ég bendi fólki bara á það graf sem er í
    fjárlagafrumvarpinu varðandi orsakavaldinn, flugfargjöld og olían hafa
    stórhækkað í verði og sú aukning sem við sáum í upphafi árs var ekki úr
    takti við það <ns:bjalla/> sem hefur gerst í janúar en við erum samt að
    skoða sérstaklega þennan lið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>