<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T18:56:12" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 18:58:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:56:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er sammála ríkisstjórninni í því að það er
    mikilvægt að skila hallalausum fjárlögum þegar ekki er sérstök krísa í
    gangi sem kallar á útgjöld af hálfu ríkisins. Ég er sammála því að það
    skipti öllu máli að það sé trúverðugleiki og að það ríki ákveðið traust.
    Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé aðhald þegar
    aðhaldsstig fjárlaga á að vera 1,1%, sem er nokkru meira, eins og stendur
    í fjárlagafrumvarpinu, en meðaltal síðastliðinna fjögurra ára, og þegar
    heildaraðhaldið er upp á 44 milljarða, þar af almennt aðhald á ráðuneytin
    5 milljarðar og fækkun stöðugilda hjá ríkinu upp á 3 milljarða, um 1%
    fjölda. Síðan eru aðrar sérstakar ráðstafanir upp á 36 milljarða af þessum
    44. Þar er stærsti liðurinn, eins og stendur í fjárlagafrumvarpinu,
    endurmat á fjárþörf vegna fjárfestinga. Á íslensku heitir þetta: Við
    settum of mikið af peningum til fjárfestinga og erum að taka þá til baka.
    Er það aðhald? Eykur það trúverðugleika að reyna að pakka þessu inn í
    eitthvert aðhald sem það er ekki?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum tekið þessa umræðu og tókum hana oft í fyrra, bæði við
    forsætisráðherra og fjármálaráðherra, um verðbólguvæntingar og það að
    hækka krónutölur umfram það sem verðbólgan er, eða eins og nú á að gera í
    lok þessa árs. Verðbólgan er reyndar 6% núna en ekki 5,6%, ef ekki hefðu
    komið til eldsneytisaðgerðirnar. Þá segir ríkisstjórnin: Það er ekki þessu
    um að kenna. Reyndar eru, eins og komið hefur fram, einu hagfræðingar
    landsins sem halda því fram fjármálaráðherra og forsætisráðherra. Hefði
    ríkisstjórnin ekki átt að einbeita sér að þeim þáttum sem valda
    verðbólgunni ef það er markmiðið að reyna <ns:bjalla/> að ná henni niður,
    þ.e. eldsneytisverðinu sem er líka ástæðan fyrir hækkun á flugmiðum, ef
    þetta er svona augljóst? Hefur forsætisráðherra í alvörunni <ns:bjalla/>
    engar áhyggjur af því, með því að hækka krónutöluna umfram það sem allir
    aðilar spá að verðbólga verði á næsta ári, að það muni ekki hafa þau áhrif
    að Pétur og Páll og Jón og Gunna <ns:bjalla/> og Sigga sem reka fyrirtækin
    sín hækki líka sínar gjaldskrár um 5,5%, <ns:bjalla/> af því að það er svo
    nálægt 5,2?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>