<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T18:59:01" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:01:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T18:59:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Það er alveg
    rétt að inni í þessu er endurmat á fjárþörf og það er alveg rétt að það má
    alveg velta því upp hvort það sé aðhald með sama hætti og að fara í
    rekstur. Ég skil spurninguna vel. Ég held að hv. þingmaður viti það líka
    sjálfur að þetta snýst ekki bara um samdrátt heldur líka að koma í veg
    fyrir að útgjöld bókstaflega aukist. Það er rosaleg fjárþörf í kerfinu,
    sérstaklega komandi út úr tímabili þar sem við sáum yfir sjö, átta ára
    tímabil mestu fólksfjölgun, eiginlega bara í nútíð íslenska lýðveldisins.
    Þetta er mesta fólksfjölgun sem við höfum séð í Vesturheimi. Þetta eru
    eiginlega tölur sem sjást í Afríku, í löndunum sem eru miklu fjær okkur,
    m.a. vegna þess að hér var hagkerfið rekið mjög heitt á sínum tíma sem
    gerði það að verkum að það varð svona mikil fólksfjölgun. Það eru miklir
    veikleikar í kerfinu vegna þess að kerfið þandist hratt út en framleiðni
    var takmörkuð þannig að við þurfum að hafa okkur öll við bara til að koma
    í veg fyrir náttúrlega aukningu í útgjöldum. Ég segi þetta vegna þess að
    ég veit að þetta er ekki auðvelt fyrir stofnanir og ég veit að þetta er
    ekki auðvelt fyrir ráðuneyti. Það að þessi minnkun í
    fjárfestingarframlögum eigi sér stað segir bara hluta af sögunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi krónutölugjöldin þá skil ég alveg þessa umræðu. Við áttum
    gott samtal við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur í sumar um hvort
    við ættum að fara í einhverja skuldbindingu þegar kæmi að þessu, m.a. að
    fyrirtæki myndu þá líka skuldbinda sig til að gera eitthvað svipað, og það
    var ákveðið að bíða með slíkt átak núna fram á haustið. Núna erum við í
    virku samtali við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur um að reyna að
    ná heildrænni nálgun á verðbólguna, sem ég vona að skili árangri, en þar
    til við a.m.k. komumst á þann stað að við erum með sjálfbær útgjöld þarf
    að passa upp á þennan lið. En ég verð bara að segja að lokum: Það þarf
    ekki annað en að skoða þróun olíuverðs það sem af er þessu ári til þess að
    átta sig á því að breytingin í verðbólgu er að mestu til komin vegna þessa
    en það er ekki 5,6% verðbólga á Íslandi út af 0,3% hækkun á gjöldum í
    janúar. Það er auðvitað undirliggjandi verðbólguaukning hérna í gegnum
    tíðina sem er vandinn. En auðvitað þarf ríkið að passa sig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>