<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:01:46" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:03:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:01:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta er ekki auðvelt, það liggur alveg í
    augum uppi. Mér finnst það hefði verið sanngjarnara af ríkisstjórninni að
    viðurkenna það í staðinn fyrir að reyna að halda því fram að þau séu að
    gera einhverja rosalega stórkostlega hluti. Ég hef miklar áhyggjur af
    þessu fjárlagafrumvarpi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En svo ég vendi nú kvæði mínu í kross aðeins og fari inn í þá
    málaflokka sem heyra undir forsætisráðuneytið þá eru það m.a. Þingvellir.
    Það er eiginlega tvennt sem mig langar að heyra aðeins nánar frá hæstv.
    forsætisráðherra. Annars vegar útfærsla á þessu 5 milljarða innviðagjaldi
    eða ferðamannagjaldi, hvernig það er hugsað. Það á að koma fram í október
    þannig að það hlýtur að liggja eitthvað fyrir sem hægt er að fara að skoða
    í þinginu. Og eins hitt, að bein framlög úr ríkissjóði til
    Þingvallaþjóðgarðs, sem rekur sig reyndar mikið á sértekjum, er verið að
    skerða um 16%, um 20 millj. kr. Þetta eru ekki háar upphæðir en 20
    milljónir telja fyrir eina slíka stofnun. Það er ekki verið að hækka um
    5,2%, það er verið að skerða um 16%. Getur hæstv. ráðherra eitthvað tjáð
    sig um það?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>