<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:03:15" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:04:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:03:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka spurninguna. Það er þannig að
    frumvarpsgerðin er á lokametrunum, að mér skilst, og það er ekki langt í
    að frumvarpið í heild sinni verði birt þannig að þá mun þetta koma í ljós.
    En við höfum farið af stað með þau prinsipp sem ég get lýst hér sem snúa
    að því að það er vilji til þess að leggja gjald á aðila sem eru ekki með
    heimilisfesti hér á Íslandi til þess að greiða sérstaklega fyrir aðgengi
    að náttúruperlum. Við erum með alls konar tækni í dag sem gæti gert fólki
    kleift að greiða slíkt gjald. Fólk fer í strætó erlendis án þess að vera
    með miða nema rafrænt og borgar fyrir fram. Eftirlit er með ýmsum hætti.
    Þetta er bara þekkt í nútímanum. Það er hægt að greiða svona gjald með
    nútímatækni þannig að þetta mun koma í ljós á næstu dögum og ég hygg að
    fólk taki vel í þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En varðandi Þingvallaþjóðgarð. Ég verð bara að fá að fletta þessu
    sérstaklega upp fyrir hv. þingmann. Það er ekki að verða nein
    stefnubreyting, get ég sagt þér. Ég á allt eins von á að þetta snúi bara
    að einhverju sérstöku verkefni. Það er a.m.k. ekki að verða stefnubreyting
    þarna á. En ef það verða breytingar á gjaldtökunni á Þingvöllum þá þarf
    auðvitað að passa upp á það og ríkið mun passa upp á það að Þingvellir
    muni áfram fá þær tekjur sem þeir fá í dag með einum eða öðrum hætti. Við
    munum áfram standa með uppbyggingunni þar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>