<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:05:15" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:10:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:05:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla að gera stuttlega grein fyrir þeim
    hluta fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2027 sem snýr að málefnasviðum sem
    undir mig heyra sem utanríkisráðherra. Það eru að sjálfsögðu utanríkismál
    og síðan alþjóðleg þróunarsamvinna og til þeirra teljast annars vegar
    samstarf og samskipti við önnur ríki, öryggis- og varnarmál,
    utanríkisviðskipti, borgaraþjónusta og þjóðaréttur og hins vegar
    þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð. Umbrotatímar sem við stöndum nú frammi
    fyrir kalla á öfluga utanríkisþjónustu til varnar viðskiptahagsmunum og
    gildum Íslands um mannréttindi og lýðræði. Niðurstaða nýafstaðinnar
    þjóðaratkvæðagreiðslu markar skýra stefnu um stöðu Íslands í
    Evrópusamstarfinu. Sú ákvörðun kallar að mínu mati ekki á minni
    utanríkisþjónustu heldur þvert á móti. Við þurfum af enn meiri krafti að
    gæta hagsmuna okkar og tryggja áhrif okkar á ákvarðanir sem varða okkur
    Íslendinga. Við þurfum að rækta náið samband við Evrópusambandið og
    einstök aðildarríki þess og höfum í huga að þangað fara um 70% af
    útflutningi okkar. Við þurfum að tryggja virkni og hagsmunagæslu innan
    EES-samstarfsins og um leið styrkja tengsl okkar við önnur lykilríki og
    alþjóðastofnanir vestur um haf en ekki síður til Asíu. Þetta gerist á sama
    tíma og alþjóðakerfið verður ófyrirsjáanlegra, öryggismál skipta sífellt
    meira máli og norðurslóðir og Norður- Atlantshaf eru komin í brennidepil
    alþjóðastjórnmála. Við þurfum eftir sem áður að vera þar sem ákvarðanir
    eru teknar, byggja upp bandalög, hafa áhrif áður en ákvarðanir liggja
    fyrir og tryggja að rödd Íslands heyrist því enginn annar, höfum það
    hugfast, en við munum gæta íslenskra hagsmuna fyrir okkar hönd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framlög til málefnasviðs 4, utanríkismála, fara úr 23,6 milljörðum
    í fjárlögum 2026 í rúmlega 26,6 milljarða á næsta ári. Mest vegur þar
    hækkun til varnarmála, um 2 milljarða kr. á föstu verðlagi eða sem nemur
    18%. Þessi hækkun endurspeglar breyttar aðstæður í alþjóðamálum og aukið
    vægi öryggis- og varnarmála og með þessu er Ísland líka að taka aukna
    ábyrgð á eigin vörnum. Eins og kunnugt er stefnir ríkisstjórnin að því að
    Ísland verji 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra innviða og
    verkefna eigi síðar en árið 2035 og jafnvel fyrr eins og ákveðið var á
    leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í júlí í fyrra og er hér um að ræða
    vörðu á þeirri vegferð. Þó er rétt að nefna að varnartengd verkefni sem
    falla undir þetta 1,5% eru víðtækari en þau verkefni sem fram til þessa
    hafa verið talin til öryggis- og varnarmála og eru sum þeirra á forræði
    annarra ráðuneyta. Áfram er gert ráð fyrir kraftmiklum stuðningi við
    Úkraínu, bæði í formi varnartengds stuðnings og mannúðar- og
    efnahagsaðstoðar og er það skýr yfirlýsing að við stöndum með
    lýðræðisríkjum heimsins í baráttunni gegn árásarhyggju og árásarstríði
    Rússa og það fara samtals um 6 milljarðar til Úkraínu. Þetta skiptir
    Úkraínumenn gríðarlega miklu máli eins og kom fram á fundi mínum í gær í
    Keflavík með Selenskí forseta á leið sinni yfir til Kanada.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á sama tíma er líka gert ráð fyrir að aðhaldsaðgerðir sem gripið
    verður til á árinu skili tæplega 400 millj. kr. hagræðingu og hún næst
    helst með forgangsröðun verkefna, niðurfellingu varasjóðs og samdrætti í
    starfsmannahaldi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar málefnasvið 35, alþjóðlega þróunarsamvinnu, er gert
    ráð fyrir að framlög hækki úr tæplega 16,4 milljörðum í 16,7 milljarða.
    Með þessari hækkun er stefnt að því að útgjöld til þróunarsamvinnu haldi
    u.þ.b. í við þróun vergra þjóðartekna en jafnan er miðað við þær þegar
    framlög mismunandi ríkja eru borin saman. Það er líklegt að þetta hlutfall
    verði í kringum 0,33% af vergum þjóðartekjum á næsta ári sem er svipað og
    undanfarin ár. Það skiptir auðvitað máli að standa þarna ákveðna
    varnarbaráttu að mínu mati því að mörg mjög stór ríki hafa dregið úr
    framlögum til þróunarsamvinnu til að geta aukið útgjöld til varnarmála.
    Framlagi Íslands verður áfram varið til verkefna í uppbyggingu mannauðs og
    grunninnviða, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og viðbrögðum við
    loftslagsmálum, auk verkefna í þágu mannréttindamála og kynjajafnréttis,
    ekki síst með áherslu á fátækustu ríki heimsins. Þá verður mannúðaraðstoð
    til að bregðast við þeirri miklu neyð sem víða hefur skapast vegna átaka
    og náttúruhamfara, m.a. á Gaza, fyrirferðarmikil á árinu og við sjáum
    náttúrlega miklar hörmungar, eins og til að mynda í Nepal, sem kallar á
    alþjóðaaðstoð sem við þurfum líka að skoða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Öryggi okkar og sjálfstæði byggist á traustu
    alþjóðakerfi og virðingu fyrir alþjóðalögum og friðhelgi landamæra. Við
    þurfum að hlúa að alþjóðlegu samstarfi og standa vörð um hagsmuni Íslands
    og þessi fjárlög endurspegla það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>