<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:10:58" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:12:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:10:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Samkvæmt tillögu
    ríkisstjórnarinnar hækka framlög til málaflokksins, ekki síst til öryggis-
    og varnarmála. Það er jákvætt að við skulum vera farin að taka skyldum
    okkar og skuldbindingum í öryggis- og varnarmálum af meiri alvöru þótt
    ástæðurnar séu ekki af jákvæðum meiði. Sú sem hér stendur þekkir þennan
    málaflokk vel enda fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra
    Sjálfstæðisflokksins þegar alger viðsnúningur varð í áherslu á öryggis- og
    varnarmál, bæði hvað varðar breytta stjórnsýslu, mikla uppbyggingu á
    varnarinnviðum en líka stóraukin samskipti við bandalagsþjóðir, ekki síst
    við Bandaríkin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því ég hef hæstv. ráðherra hér má ég til með að beina talinu að
    vinnubrögðum hennar gagnvart hv. utanríkismálanefnd. Hæstv. ráðherra hefur
    ítrekað gagnrýnt fyrri stjórnvöld fyrir að skrifa og senda bréf. Með leyfi
    forseta, þá „treysti þáverandi ríkisstjórn sér ekki til að fara fyrir
    utanríkismálanefnd heldur skrifaði bréf í leyni. […] Ég frábið mér svona
    vinnubrögð,“ sagði hæstv. ráðherra þá. Hæstv. utanríkisráðherra kom á fund
    utanríkismálanefndar til að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna. Aðspurð um
    hvernig hún ætlaði sér að virða vilja þjóðarinnar, höfnun á ESB-leiðangri
    ríkisstjórnarinnar, sagðist hæstv. ráðherra vera að skoða þau mál.
    Utanríkismálanefnd fékk síðan eftir á tilkynningu um að sami hæstv.
    ráðherra hefði sent bréf — einhver hefði nú sagt skrifað bréf í leyni —
    með formlegri tilkynningu frá sjálfri sér um hvaða þýðingu skilaboð meiri
    hluta þjóðarinnar höfðu. Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum, virðulegi
    forseti? Ætlar hæstv. ráðherra að halda áfram uppteknum hætti? Eru þetta
    ekki einmitt vinnubrögðin sem hæstv. ráðherra hafði hvað hæst um þegar hún
    sat sjálf í hv. utanríkismálanefnd?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>