<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:12:59" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:15:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:12:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það hefur verið alveg skýrt að við höfum verið
    í miklu samráði við utanríkismálanefnd og komið iðulega með upplýsingar,
    bæði í trúnaði og líka opnu samráði, inn á fundinn. Það eru engin tíðindi,
    svo ég undirstriki það, sem felast í þessu bréfi. Ég vil líka vekja
    athygli á því sem m.a. kom fram hjá landskjörstjórn í upplýsingabæklingi
    varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, að ef það yrði nei þá yrði bara
    einfaldlega ekki gert neitt frekar og það er í rauninni það sem við erum
    að gera. Það eru engin tíðindi sem birtast í bréfinu, um engia
    stefnumarkandi ákvörðun að ræða. Það er alveg skýrt að kosið var um
    áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið en ekki tekin afstaða
    til breyttrar stöðu aðildarferilsins. Við vorum hér og þjóðin var spurð:
    Eigum við að fara þangað? Þjóðin sagði nei. Þá erum við hér áfram. Svo
    einfalt er það. Það breytir ekki neinu í því þannig að málinu er lokið af
    hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég held að við eigum að loka þessum kafla og ég
    hvet þingmenn til að horfa fram á við og taka þátt í þeim verkefnum sem
    eru fram undan. Það eru ærin verkefni fram undan, m.a. á sviði
    utanríkismála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því að hv. þingmanni varð tíðrætt um einhverja leyndarhyggju og
    það er eins og sumir þingmenn geti ekki opnað munninn öðruvísi en að
    dylgja um alls konar hluti, þá veit ég alla vega það að ég hef talað við
    utanríkismálanefnd. Ég upplýsti hana nákvæmlega um hver staðan væri og
    hver mín afstaða væri til afturköllunar umsóknar eða til þessa óbreytta
    ástands sem við erum einfaldlega að vísa til. Ég vil líka minna hv.
    þingmann á, af því að hann var að tala um aðstoðarmannstíð sína í fyrri
    ríkisstjórn, að þá var m.a. komið inn með viðbót í varnarsamninginn við
    Bandaríkin 1951 sem skiptir mjög miklu máli af hálfu þess ráðherra sem hún
    aðstoðaði. En utanríkismálanefnd var ekki kölluð til. Þá var þingið ekki
    upplýst, þannig að ég frábið mér svona dylgjur og vísa þeim til
    föðurhúsanna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>