<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:16:31" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:17:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:16:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil bara undirstrika að bréfið sem var sent
    til Evrópusambandsins, formennskulandsins Írlands og
    framkvæmdastjórnarinnar, tilgreinir með almennum hætti það samstarf sem
    þegar er við lýði milli Íslands og Evrópusambandsins og áréttar að það
    haldi áfram. Það er mikilvægt að hlúa að því mikilvæga samstarfi sem við
    höfum í gegnum EES-samninginn. Það skiptir máli að það samstarf haldi
    áfram og ég vil hvetja hv. þingmenn, þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
    Miðflokksins, til að standa með ríkisstjórninni í því að passa og hlúa að
    EES-samningnum. Það er alveg skýrt og ég vona að það sé þannig — alla vega
    er það þannig að ríkisstjórnin er bara að halda áfram. Það vita allir að
    ég var ekkert endilega glöðust með þessa niðurstöðu en ég horfist í augu
    við hana og vinn út frá hagsmunum Íslands og við verðum þá bara að vinna
    út frá þeim breytta veruleika. Ég hvet hv. þingmenn til að koma með mér í
    þetta varðandi þróunarsamvinnuna. Það má segja, af því að þetta er svipað
    og var á síðasta ári, að það hafi í rauninni verið háð ákveðin
    varnarbarátta, að mínu mati, fyrir þróunarsamvinnunni og við Íslendingar
    getum áfram með stolti nálgast þau mikilvægu málefni og erfiðu málefni sem
    falla undir þróunarsamvinnu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>