<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:17:59" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:19:32-->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:17:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Grænland er næsti nágranni okkar Íslendinga,
    land sem er ofarlega á baugi í umræðunni þessa dagana. Við eigum að rækta
    tengslin við þennan nágranna okkar vel. Ég veit að við viljum það hér inni
    öll sem eitt. Þessi íslenska nálgun þarf að hvíla á mjög skýrri forsendu:
    Ekkert um Grænland án Grænlendinga og aðkomu Grænlands er þörf í þeim
    málum og á þeim vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar um framtíð þess.
    Hlutverk okkar Íslendinga er að byggja upp beint og gagnkvæmt samstarf við
    þá á jafnréttisgrundvelli. Þar erum við í einstakri stöðu. Ég hef á
    undanförnum mánuðum verið í mjög þéttu samstarfi við grænlenska fulltrúa,
    ýmist þingmenn, fulltrúa í ríkisstjórn eða sérfræðinga þar í landi. Ég
    eyddi hluta sumars á Grænlandi. Við vitum hins vegar að ráðherra hyggst
    nýta fjármuni í fjárlögum til að auka getu til að dýpka beint samstarf við
    Grænland og fylgja eftir samstarfsyfirlýsingunni sem gefin var út af hálfu
    utanríkisráðuneytisins 2022.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil af því tilefni fá að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða
    verkefni, jafnvel tvö til þrjú, eiga að ganga þar fremst? Hvaða hlutverk
    sér hæstv. ráðherra fyrir íslenskar sendiskrifstofur, fyrir Alþingi og
    vestnorrænt og norrænt samstarf í þeirri framkvæmd til þess að efla og
    þétta samskipti okkar við þennan góða og stóra nágranna enn
    frekar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>