<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:19:47" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:22:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:19:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir
    þessa spurningu því að það skiptir máli í öllu þessu umróti einmitt að við
    ræktum okkar nánustu nágranna og næstu nágranna, sem eru Grænlendingar og
    síðan Færeyingar. Það er alveg ljóst að afstaða þessarar ríkisstjórnar í
    þessu róti í heiminum og því sem hefur verið sagt um Grænland, m.a. af
    hálfu Bandaríkjastjórnar, og afstaða okkar Íslendinga hefur alveg verið
    skýr alveg frá upphafi: að við stöndum að sjálfsögðu með Grænlandi og það
    er þeirra að ákveða sína framtíð. Ísland og Grænland eiga náttúrlega mjög
    gott tvíhliða samstarf. Við höfum gjarnan viljað auka það og dýpka, m.a.
    með opnun sendiskrifstofunnar, eins og við þekkjum, í Nuuk 2013 og síðan
    sendiskrifstofu Grænlands hér í Reykjavík, sem hefur auðvitað aukið
    samskiptin mikið. Mér finnast það mikil verðmæti að geta hitt hér
    reglulega fastafulltrúa Grænlendinga, ekki síst á þessum tímum, og geta
    spjallað við hann. Áherslur okkar stjórnvalda birtast með þeim hætti að
    löndin eiga í reglulegu samstarfi á ráðherra- og embættisstigi. Það er
    gott. Við munum halda áfram að fylgja eftir yfirlýsingu sem
    forsætisráðherrar landanna undirrituðu annars vegar 2022 og síðan 2025.
    Við höfum rætt það mjög opinskátt við Grænlendinga að við viljum gjarnan
    gera fríverslunarsamning við þá. Við skiljum að það eru mörg önnur mál
    akkúrat núna sem taka kannski meiri tíma hjá þeim. En það er alveg ljóst
    að við höfum ítrekað að það er vilji okkar Íslendinga að taka slík skref,
    alla vega aukin skref varðandi viðskiptamál. Við erum með þessa pólitísku
    viðveru á Grænlandi, m.a. útsendan aðalræðismann, eins og ég gat um. Við
    ætlum ekki eins og er að fjölga útsendum starfsmönnum þar en ég vil bara
    undirstrika að það er ríkur pólitískur vilji til þess að rækta og næra
    sambandið við Grænland og ég sé ekki síst mörg tækifæri og hef kynnst
    dásamlegu fólki sem er búsett á Grænlandi, m.a. í gegnum handboltann, það
    er ákveðið menningarstarf, og menningarsamstarf í gegnum listafólk og
    fleira mætti telja. Ég veit að sumar sveitarstjórnir hérna heima eru í
    góðu samstarfi við hinar ýmsu sveitarstjórnir á Grænlandi og þetta er
    eitthvað sem ég tel afar hjálplegt til þess einmitt að dýpka samstarfið og
    rætur okkar, landanna tveggja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>