<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:22:31" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:24:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:22:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir gott og yfirgripsmikið
    svar á skömmum tíma. Ég held að það sé mikilvægt að við einbeitum okkur að
    sérstöðu Íslands í samstarfi við Grænland. Við erum sá nágranni sem getur
    nálgast það á jafnréttisgrundvelli. Nú er tími til að efla okkur í þessu
    samstarfi, samhjálp og stuðningi við Grænlendinga, að hefja það upp fyrir
    hið pólitíska dægurþras og tala einni röddu hér á Alþingi. Sú athygli nær
    langt út fyrir landsteinana. Sá stuðningur á að vera
    fyrirvaralaus.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil að svo búnu hvetja ráðherra til tvenns: Annars vegar að
    gera mögulega drög að verkáætlun þar sem við tökum nokkra verkþætti til
    skoðunar og mælum árangurinn af þeim. Þetta geta verið einstök verkefni á
    sviði viðskipta, mennta- og rannsóknartengsla eða félagslegra mála. Ég býð
    fram alla mína aðstoð við það og veit að ríkur vilji er hjá þingheimi til
    þess að leggja því lið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hins vegar vil ég í lokin eindregið hvetja hæstv. ráðherra til að
    eiga samtal við ráðherra í ríkisstjórn Grænlands um að koma á
    Norðurlandaráðsþing í Helsinki í lok október þar sem þeir hafa til þessa
    ekki séð sér fært, a.m.k. í tvö ár, að vera þar á meðal okkar og taka þátt
    í þinginu, hálfpartinn í mótmælaskyni við það að endurskoðun
    Helsingfors-sáttmálans hefur tafist. En þess þá heldur er svo mikilvægt að
    þeir komi og við getum þá lyft rödd þeirra og sýnt það og sannað að þeir
    standa sannarlega undir þeirri ábyrgð sem felst í því að taka þátt í
    Norðurlandasamstarfi og vera pólitískur leikandi á hinu stóra
    sviði.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>