<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:24:17" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:25:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:24:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Kæri hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir. Ég vil
    þakka fyrir frábærar athugasemdir. Ég ætla að taka þennan bolta varðandi
    verkáætlunina. Ég mun m.a. gera það af því að ég og hæstv. ráðherra Logi
    Einarsson höfum rætt mikið samskipti okkar við Grænland og ég held að það
    sé eitthvað sem við gætum unnið sameiginlega að og komið síðar til
    þingsins. Þetta er eitthvað sem gæti raunverulega skilað árangri og ýtt
    málum áfram á hinum ýmsu sviðum menningar, nýsköpunar, hjá okkur og
    náttúrlega í utanríkisviðskiptum og fleira.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil eindregið taka undir hvatningu hv. þingmanns til
    Grænlendinga og ég vona, ef þeir eru að hlusta, að þeir komi á
    Norðurlandaráðsþingið. Við Íslendingar styðjum eindregið að Grænlendingar
    verði fullir aðilar að Norðurlandaráði. Ég geri mér alveg grein fyrir
    einhverri svona togstreitu sem er meðal annarra Norðurlandaríkja sem eru
    fyrir í þessu fimm landa samstarfi. En það er kominn tími til þess að við
    tökum skref fram á við, að við horfum á heiminn eins og hann er núna
    <ns:bjalla/> og styðjum Grænlendinga eindregið í því að vera fullgildir
    meðlimir eftir breytingu á Helsingfors-sáttmálanum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>