<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:25:46" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:27:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:25:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú fór hæstv. utanríkisráðherra vel yfir, í ræðu hér
    í þinginu fyrir nokkrum árum, þau áhrif sem bankaskattur hefur á heimili
    landsins og hæstv. ráðherra var skýr á sínum tíma: Hækkun á bankaskatti
    hefur slæm áhrif á heimili landsins. Því langar mig að spyrja: Hvað
    breyttist? Þetta er ekki eini skatturinn sem hæstv. ríkisstjórn hefur
    ákveðið að standa fyrir þrátt fyrir loforð Viðreisnar og annarra í þessari
    ríkisstjórn um að hækka ekki skatta. Því spyr ég hæstv. ráðherra, eins og
    ég spurði hæstv. forsætisráðherra áðan: Af hverju er verið að svíkja gefin
    loforð? Þið lofuðuð að hækka ekki skatta, þið eruð að hækka skatta.
    Spurningin er: Af hverju er verið að svíkja það loforð?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig einnig að spyrja í ljósi mjög misvísandi ummæla
    hæstv. utanríkisráðherra varðandi stöðu umsóknar Íslands að
    Evrópusambandinu: Hvernig lítur hæstv. ráðherra á stöðuna? Lítur hæstv.
    ráðherra svo á að umsóknin sé gild eða ekki?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>