<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:27:20" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:29:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:27:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar
    spurningar. Það er alveg ljóst, eins og ég gat um áðan, að þjóðin var
    spurð: Eigum við að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið að nýju?
    Við vorum í þessari stöðu. Eigum við að fara þangað? Þjóðin sagði nei og
    þá erum við bara í sömu stöðu. Mig rekur ekki minni til þess að þessu hafi
    verið sérstaklega flaggað, m.a. af hálfu nei-sinna sem ræddu allt aðra
    hluti í kosningabaráttunni, til að mynda um fullveldi, til að mynda um
    sjávarauðlindir, til að mynda um mikilvægi EES-samningsins, sem ég vona
    svo heitt og innilega að hafi ekki bara verið notað til heimabrúks til að
    fá fólk á þennan blessaða nei-vagn og menn hafi kjark til þess að standa
    við það sem var sagt um EES-samninginn. Í því felst m.a. ábyrgð þingmanna
    sem eru í utanríkismálanefnd eða hafa áhuga á utanríkismálum á að standa
    vörð um þennan mikilvæga viðskiptasamning sem Ísland hefur gert. Þá þýðir
    ekki, eins og ég hef áður sagt, að umgangast þennan samning eftir
    pólitískri tækifærismennsku, eftir hentistefnu eða að hann sé einhver
    konfektkassi. Það er ekki ábyrg nálgun í alþjóðamálum og skuldbindingum
    sem við undirgöngumst. Þá þætti mér bara hreinna og beinna að fá það á
    hreint frá Miðflokknum og sumum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að menn
    vilji ekki standa við EES-samninginn. Komið þið þá bara hreint fram. Það
    er alltaf þessi hálfvelgja. Það er alltaf verið svona að ýja að einhverju,
    en svo ekki. Segið hlutina hreint út: Viljið þið standa með EES-samningnum
    eða ekki?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég undirstrika að það hefur ekkert breyst. Við erum í sömu stöðu í
    dag og við vorum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og það hefur Evrópusambandið
    fengið að vita. Við ætlum alla vega að halda áfram en mér heyrist að stór
    hluti stjórnarandstöðunnar ætli að vera fastur í því sama hjólfari. Það er
    eins og það sé ekki hægt að tala um neitt annað. Það er bara margt sem
    þarf að gera og ganga í.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>