<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:29:32" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:30:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:29:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég held að ég verði bara að spyrja hæstv. ráðherra
    aftur að sömu spurningu því ég fékk ekki svar. Spurningin er enn þá: Hver
    er staðan á umsókninni? Hvort sem hún er sú sama og hún var fyrir eða
    eftir: Hvernig lítur hæstv. ráðherra á stöðu umsóknarinnar? Hvað þýðir
    staðan sem er núna og var þá fyrir líka? Hvernig lítur hæstv. ráðherra á
    það? Hver er sú staða? Og ég fékk engin svör við spurningunni: Af hverju
    er ríkisstjórnin, hæstv. ráðherra, Viðreisn, að svíkja gefin
    kosningaloforð þess efnis að hækka ekki skatta?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það að þurfa að hafa kjark til að standa með EES-samningnum — já,
    það þarf þess, en hann skortir hjá núverandi ríkisstjórn vegna þess að
    kjarkurinn snýst um það að standa með Íslandi og verja okkar hagsmuni,
    gæta hagsmuna Íslands með því að bæta hagsmunina á fyrra stigi, ekki að
    innleiða allt óbreytt. Hagsmunagæsla snýst ekki um það að beygja sig niður
    og taka á móti bókun 35.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>