<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:30:49" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:32:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:30:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þetta var athyglisvert andsvar eða spurning því
    að mér fannst það eiginlega undirstrikast enn frekar að það er engin
    alvara af hálfu Miðflokksins um að standa með EES-samningnum. Það eru skýr
    <ns:frammíkall/> skilaboð út í atvinnulífið. Ja, það eru skýr skilaboð út
    í atvinnulífið að Miðflokkurinn ætlar ekki að gera það og <ns:frammíkall/>
    frekar að umgangast hann, eins og ég segi, eins og einhvern
    konfektkassa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að svara spurningunni varðandi bankaskattinn.
    <ns:frammíkall/> Ég ætla að svara henni og það er alveg rétt að ég sagði
    þetta á sínum tíma, alveg rétt. Ég vonaðist til þess, þegar hann var
    lækkaður á sínum tíma, að við sæjum þá áhrifin, að hann hefði haft
    raunverulega lækkun í för með sér en hann gerði það ekki. Við skulum ekki
    gleyma því að við erum með 866 milljarða af uppsöfnuðum halla síðustu átta
    ár. Það hefur engin ríkisstjórn verið með jafn mikinn niðurskurð og aðhald
    síðan Friðrik Sophusson var fjármálaráðherra hér á sínum tíma. Það er
    mikilvægast fyrir okkur í ríkisstjórninni að ná jafnvægi í ríkisrekstri og
    það er það sem við getum gert til þess að styðja Seðlabankann í því að
    lækka vexti og við getum tekið þátt í því að verðbólga hjaðni. Og við
    skulum ekki gleyma því að <ns:bjalla/> hallalaus fjárlög er það sem
    skiptir núna mestu máli <ns:frammíkall/> til þess að ná stöðugu …
    <ns:bjalla/> — þannig að við getum farið að ná niður verðbólgu. Við skulum
    alveg hafa það á hreinu að tekjur ríkisins hafa verið stærri hluti
    þjóðarkökunnar, af vergri landsframleiðslu, árin 2014, 2015, 2018 og 2019.
    Og ég held að hv. þingmaður viti m.a. hverjir voru í ríkisstjórn
    þá.</ns:mgr>

    <!--ruglingsleg síðasta setningin, finn ekki heimild/st.-->

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Forseti vill biðja hv. þingmenn að hafa
    hljóð í salnum meðan verið er að halda ræðu hér í pontu, öll framíköll og
    allt tal er mjög truflandi, vinsamlega.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>