<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:32:53" skst="SHP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:34:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:32:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Íslendingar hafa frá stofnun lýðveldisins byggt
    varnir landsins á samstarfi við vina- og bandalagsríki. Við gerðum
    varnarsamning við Bandaríkin árið 1951 og erum stofnaðilar að
    Atlantshafsbandalaginu. Þetta samstarf er ein af grunnstoðum öryggis
    Íslands en varnarsamningurinn og aðild okkar að NATO svara ekki öllum þeim
    ógnum sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þau tryggja ekki ein og sér að
    sæstrengir, fjarskiptakerfi, hafnir, flugvellir og orkukerfi landsins séu
    nægilega varin. Þau sjá heldur ekki til þess að við eigum nauðsynlegar
    birgðir, örugg varafjarskipti eða getu til að halda stjórnsýslu og
    grunnþjónustu gangandi ef alvarleg krísa verður. Þetta eru verkefni sem
    við verðum að taka ábyrgð á sjálf eins og margir hafa bent á síðustu
    vikur. En ef við ætlum að efla eigin varnir og öryggisviðbúnað verður að
    liggja skýrt fyrir hvað það þýðir í raun. Hvaða innviði ætlum við að
    verja? Hvaða getu þurfum við að byggja upp og hvaða fjármuni erum við
    reiðubúin að leggja til?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvað felst
    raunverulega í því að Ísland taki aukna ábyrgð á eigin vörnum og öryggi?
    Hvar eru stærstu veikleikarnir og hvaða innlendu getu telur ráðherra
    brýnast að við fjármögnum og byggjum upp?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>