<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:34:29" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:37:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:34:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á eru
    grunnstoðir okkar í varnar- og öryggismálum annars vegar aðildin að NATO
    og hins vegar tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin frá 1951. Við þurfum
    hins vegar að byggja áfram og það er það sem við höfum verið að gera. Við
    höfum verið að efla eigið öryggi og varnir með því að leggja meira af
    mörkum til sameiginlegra varna. Þetta kallar á virkari þátttöku í
    samstarfi innan NATO en ekki síður í gegnum tvíhliða samstarf við
    Bandaríkin. Samstarf við Bandaríkin á sviði öryggis og varna hefur verið
    gott á umliðnum árum en við erum líka að gera þessa tvíhliða samninga eins
    og við Finnland, við Noreg, við Frakkland, við Þýskaland, Kanada og líka
    Evrópusambandið og við þurfum að rækta þessa samninga núna fyrst við
    fengum ekki jáið, af því að hluti af því að fara inn í Evrópusambandið var
    að tengja sig við netið sem er svo öflugt hjá Evrópusambandinu í
    fjölþáttaógnum og fjölþáttavörnum. Árás á okkur verður ekki endilega í
    gegnum hefðbundna einkennisbúninga og hermenn. Ógnirnar steðja einmitt,
    eins og hv. þingmaður segir, að innviðunum, neðansjávarinnviðum,
    orkuinnviðunum okkar og fleira, og þar þurfum við að skerpa og efla
    samstarf okkar við aðrar þjóðir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég átti líka mjög athyglisvert samtal í gær við Zelensky forseta
    þar sem var m.a. komið inn á að þeir hafa verið að tala við okkur eins og
    fleiri ríki og bjóða fram ákveðna sérfræðiþekkingu sem þeir, undir
    ömurlegum kringumstæðum, hafa þó náð að þróa en þeir eru einna öflugastir
    á því sviði innan Evrópu, þannig að við erum að reyna að klukka eins og
    við getum. Stærsta einstaka framlagið sem Ísland leggur NATO til hefur
    verið og verður áfram rekstur ratsjárstöðvanna fjögurra á Miðnesheiði,
    Keflavík, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi og við þurfum að
    halda áfram að veita öfluga gistiríkjaþjónustu á öryggissvæðinu á
    Keflavíkurflugvelli. Við erum nýlega búin að taka á móti Belgum
    <ns:bjalla/> sem komu hingað um daginn og þeir ætla að koma aftur, minnir
    mig, í mars eða apríl. Þetta skiptir máli í stóra samhenginu og það er
    mikilvægt að við séum að draga fram enn meiri styrk okkar þegar kemur
    einmitt að þessari þjónustu <ns:bjalla/> því að við sjáum blessunarlega
    líka meiri fókus NATO á þessu svæði sem er því miður orðið hærra
    spennusvæði en áður. <ns:bjalla/> Þess vegna var mikilvægt að upplifa
    Norðurvíkingsæfinguna um daginn en líka samvinnu við okkar helstu
    bandamenn innan NATO.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>