<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:37:18" skst="SHP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:38:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:37:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en nú
    förum við 20 ár aftur í tímann þegar hæstv. utanríkisráðherra, þá sem
    staðgengill þáverandi utanríkisráðherra, fór fyrir fjölmennri íslenskri
    viðskiptanefnd til Indlands. Þar opnaði hún sendiráð Íslands í Nýju-Delí,
    hitti m.a. forseta landsins og hvatti til aukinna samskipta og viðskipta
    milli ríkjanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar því að spyrja ráðherrann: Þegar hún lítur yfir þessi 20
    ár, hvaða árangur telur hún mikilvægastan í samskiptum Íslands og Indlands
    og hvaða lærdóm getum við dregið af þeirri vegferð þegar kemur að því að
    efla hagsmunagæslu, viðskipti og pólitísk tengsl Íslands við ríki um allan
    heim?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>