<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:38:20" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:39:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:38:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er rétt, ég varð þess heiðurs aðnjótandi að
    hlaupa í skarðið fyrir þáverandi utanríkis- og forsætisráðherra, fór til
    Indlands og opnaði sendiráðið á sínum tíma. Síðan hefur tvíhliða samband
    Íslands og Indlands vaxið mjög. Við erum að sjá það á mörgum sviðum. Fyrst
    er náttúrlega til að taka nýlegan fríverslunarsamning, sem er gríðarlega
    mikilvægur, á milli EFTA-ríkjanna og Indlands, skiptir okkur miklu máli og
    kom til framkvæmda á síðasta ári. Við þurfum að fylgja því eftir. Hann
    felur í sér mikil tækifæri fyrir atvinnulífið, fyrir ýmis fyrirtæki hér
    heima sem við höfum á grunni okkar þekkingar. Ég horfi sérstaklega til
    sjávarútvegs annars vegar og orkumálanna og orkuþekkingar hins vegar.
    Indversk stjórnvöld hafa nú þegar hrint af stað átaki til að efla þekkingu
    og getu á sviði endurnýjanlegrar orku þar sem einmitt er verið að klukka
    okkur inn og Ísland hefur auðvitað mikið þar fram að færa. Á pólitíska
    sviðinu hefur samstarfið líka verið að aukast <ns:bjalla/> og það er
    aldeilis frábært að hafa indverskan sendiherra hér. Ég vil líka geta þess
    að ég hef þegar tilkynnt að ég muni fara til Indlands á næsta ári og taka
    þátt í ráðstefnu sem er haldin undir forystu forsætisráðherra
    Indlands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>