<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:40:04" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:42:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:40:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra nefndi að
    það væri 400 millj. kr. aðhald sem m.a. væri fólgið í því að taka niður
    varasjóð. Þá vil ég bara minna á lög um opinber fjármál, þar er ekki
    aðhald að taka niður varasjóði. Það er ekki þannig. En mig langar að
    spyrja hæstv. ráðherra um að það er gert ráð fyrir 230 millj. kr. auknu
    framlagi til að efla aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins á sama tíma og
    ríkisstjórnin setur ríkisstofnunum markmið um fækkun stöðugilda eða um 1%.
    Hvaða nýju verkefni réttlæta þessa 230 millj. kr. aukningu og hvers vegna
    er eðlilegt að efla aðalskrifstofu ráðuneytisins á sama tíma og
    aðhaldskrafa er lögð á fjölmargar aðrar stofnanir ríkisins? Og talandi um
    aðhald; í fjárlagafrumvarpinu er heildaraðhald 44 milljarðar. Ég held að
    það megi segja að ef fjármálastjóri og framkvæmdastjóri kæmu til stjórnar,
    eins og ríkisstjórnin er í rauninni að koma hérna til þingsins í dag, og
    segðu: Hérna er 44 milljarða aðhald, við erum búin að útfæra 8 milljarða
    en 36 byggjast á því að við ætlum að taka peninga sem ganga ekki í að
    byggja nokkur hús og við ætlum að bæta okkur í innkaupum hjá fyrirtækinu
    og við ætlum að fara í tæknilausnir sem skila skilvirkni — ef 80% af þessu
    aðhaldi væru óskilgreind og eitthvað væri kallað sértækar ráðstafanir þá
    er ég hræddur um að framkvæmdastjórinn og fjármálastjórinn yrðu annaðhvort
    reknir eða í það minnsta reknir heim og látnir koma aftur fyrir stjórnina
    með skýrari skilaboð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði bara að ítreka þessa spurningu um aðhaldið hjá
    ráðuneytinu og hverju það sætir að það sé veruleg aukning hjá
    aðalskrifstofu ráðuneytisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>