<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:42:23" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:44:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:42:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að
    utanríkisráðuneytið hefur bætt við sig stórum verkefnum. Meðal annars
    hefur CERT-IS komið yfir. Það er alveg markvisst hjá okkur að það þurfi að
    efla netöryggi með því annars vegar að taka stofnunina yfir og hafa hana
    nærri öðrum verkefnum eins og varnarmálaskrifstofu og öðrum þáttum
    utanríkisþjónustunnar en líka er alveg ljóst að við höfum sett okkur þau
    markmið að við getum a.m.k. verið á pari við Norðurlöndin þegar kemur að
    netöryggismálum. Það hefur þurft að fjárfesta í því og m.a. í
    starfsmannafjölda en það er hlutfallsleg fækkun í heildina á starfsfólki
    ráðuneytisins. En ég vil sérstaklega geta þess að við erum búin að bæta
    við okkur CERT-IS og síðan hefur náttúrulega verið bætt í áritunardeildina
    eftir lagabreytinguna sem var samþykkt síðastliðið vor.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi varasjóðina þá er þetta einfaldlega miðlæg ákvörðun sem
    var tekin og við fylgdum henni. Hvað varðar 230 millj. kr. á
    aðalskrifstofu þá vil ég fyrst og síðast útskýra það með því að við erum í
    dag núna með formennsku í Eystrasaltsráðinu og verðum fram á næsta ár. Það
    hefur aukist að umfangi. Ég verð að viðurkenna að þegar ég byrjaði á þingi
    á síðustu öld og maður fylgdist með Eystrasaltsráðinu þegar það kom, þá
    fannst mér vægi þess vera að minnka. Það er að aukast núna á þeim tímum
    sem við erum að upplifa núna. Það er gríðarlega mikilvægt og dýrmætt að
    finna að það eru ekki bara NB8-ríkin sem eru þar heldur líka Pólverjar og
    Þjóðverjar og þeir eru að taka miklu markvissari skref inn í þetta. Þetta
    hefur kallað á meiri störf og meiri ábyrgð og við Íslendingar ætlum að
    standa okkur þar. Síðan er það auðvitað setan í mannréttindaráðinu sem
    lýkur á næsta ári, eftir lok næsta árs. Hún skiptir okkur mjög miklu máli.
    Þetta eru kannski þeir liðir sem útskýra af hverju þetta fer á
    aðalskrifstofuna, ekki síst með tilliti til þessa. Ég vil geta þess að við
    erum núna með formennsku, tókum við henni 1. júlí af Pólverjum sem sinntu
    henni af mikilli natni, og við þurfum að halda vel á spöðunum og ekki síst
    að halda þessum ríkjum nærri okkur <ns:bjalla/> þegar það er verið að
    kalla á aukna samstöðu vestrænna lýðræðisríkja, eins og ég segi, á þessum
    síðustu og verstu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>