<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:45:02" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:46:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:45:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég get heldur ekki látið hjá líða að spyrja
    hæstv. ráðherra, sem einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar, út í almenna
    stöðu fólksins í landinu og þær yfirlýsingar sem menn hafa gefið.
    Varaformaður Viðreisnar, hæstv. fjármálaráðherra, sagði þrýstingi létt af
    heimilunum. Gott fyrir Ísland, sagði hæstv. forsætisráðherra. Ég held að
    ég fari rétt með, ef ég vitna í hæstv. utanríkisráðherra, að hún hafi
    sagt, hún segir oft svo margt í einu: Við erum að gera þetta fyrir
    heimilin og fólkið í landinu. Þá vil ég spyrja: Er það að frysta
    barnabætur? Er það að hækka komugjöld um 100%? Er það að breyta
    lyfjaflokkun þannig að 500 milljónir séu teknar af sjúklingum? Er það að
    sjúkraþjálfarar og sjúklingar þurfi að greiða 1,2 milljörðum meira? 5,2%
    krónutöluhækkunin, eru það breiðu bökin sem eiga að taka hana? Mun það
    styrkja húsnæðismarkaðinn að lækka endurgreiðslurnar úr 35% í 20%? Og
    bankaskatturinn, sem hæstv. ráðherra hefur sjálfur sagt að fari til
    neytenda? Eru þetta breiðu bökin sem eiga að bera <ns:bjalla/> hallalaus
    fjárlög fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og
    fjármálaráðherra?</ns:mgr>

    <!--segir eiginlega "sjúkraþjálfarar -  sjúklingar", ekki viss hvort hann mismælir sig og á ekki við sjúkraþjálfara en þori ekki að sleppa/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>