<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:46:36" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:48:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:46:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég er náttúrulega að tala við mjög
    reynslumikinn mann, ekki síst úr ríkisstjórn, sem veit að það er aldrei
    auðvelt að vera í ríkisstjórn og taka ákvarðanir. En það sem þessi
    ríkisstjórn er að gera er einmitt að taka ákvörðun sem ég saknaði á
    síðustu níu árum. Hvað sem hver segir þá er uppsafnaður halli síðustu átta
    ár 866 milljarðar. Við erum að skila fyrstu hallalausu fjárlögunum ári
    fyrr en ætlað var. Hefur það ekki erfiðar ákvarðanir í för með sér? Jú.
    Við erum að reyna að taka þessar erfiðu ákvarðanir núna, ekki alltaf vera
    að ýta þessu á framtíðarkynslóðir eða bara á næstu ríkisstjórnir. Mér
    finnst enginn bragur á því. Það er örugglega hægt að gagnrýna eitt og
    annað í þessum fjárlögum, já, já. En stóra myndin er sú að við erum að
    gera þetta með heildarhagsmuni í huga, ekki síst heimilanna, fyrirtækjanna
    og atvinnulífsins, þannig að það verði einhver stöðugleiki, það verði
    lægri verðbólga og við getum séð fram á vaxtalækkunarferli hjá
    Seðlabankanum. Mér finnst skipta máli að við sýnum Seðlabankanum traust
    með ábyrgum aðgerðum. <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil geta þess að það var til að mynda ekkert skorið niður á
    árunum 2014 til 2022 þar sem m.a. Framsóknarflokkurinn <ns:bjalla/> var
    meira og minna í stjórn, meira og minna. Það var ekkert skorið niður, það
    var ekkert aðhald. Þetta er bara alltaf það sama. <ns:bjalla/> Það er
    ósköp auðvelt að vera í pólitík ef ákvarðanir eru teknar þannig að það er
    bara næstu kynslóða eða næstu ríkisstjórna að borga reikninginn.
    <ns:bjalla/> Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að gera það. Já, það eru ýmsar
    óvinsælar ákvarðanir sem fylgja þessu en við ætlum að stoppa hallann og
    skila hallalausum fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB">Forseti vill minna á ræðutímann, hafa í
    huga hvað hann er langur hverju sinni.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>