<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:48:58" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:51:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:48:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er svo sem af mörgu að taka. Ég þakka
    hæstv. ráðherra fyrir sitt innlegg. Ég vildi kannski byrja á því, af því
    að við erum að tala um fjárlögin, að spyrja hæstv. ráðherra hvernig á því
    standi að við lesum um það í blöðum — minnisblöð eru send á félagasamtök
    en hv. fjárlaganefnd fær ekki upplýsingar um það hvernig 43 milljörðum er
    varið í varnartengd verkefni. Við byrjuðum að biðja um þetta í október á
    síðasta ári og það er með ólíkindum að við getum ekki fengið þetta. Ég vil
    kannski byrja á þeirri spurningu. Mér fannst hæstv. ráðherra heldur ekki
    svara því af hverju Viðreisn lofaði því að hækka ekki skatta fyrir
    kosningar. Stóð aldrei til að efna það eða af hverju var það ekki gert?
    Því það er sama loforð og kom frá Samfylkingunni og gott ef ekki Flokki
    fólksins líka. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er augljóst að það er órætt hvernig ríkisstjórnin ætlar að
    ganga frá niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þó að því hafi ekki
    verið svarað skýrt áðan þá gat ég ekki skilið hæstv. ráðherra á annan veg
    en þann að hann telji að Ísland sé umsóknarríki, sem eru náttúrlega miklar
    fréttir. En það var eitthvað sem hæstv. ráðherra samdi um við
    Evrópusambandið og kom okkur sem höfum setið í þessum stól mjög á óvart.
    En ef við erum umsóknarríki og menn ætla ekki að afturkalla umsóknina,
    ætla menn þá að fá greidda IPA-styrki sem umsóknarríki fá alla jafna? Það
    er bara almenn regla. Tyrkland hefur t.d. fengið hundruð milljarða í
    IPA-styrki en Evrópusambandið hætti að greiða Íslandi IPA-styrki,
    aðlögunarstyrki, þegar umsóknin var dregin til baka. Ef umsóknin er í
    gildi, skuldar Evrópusambandið þá ekki íslenska ríkinu gríðarlega mikið af
    umsóknarstyrkjum? Eða hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í því?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>