<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:51:29" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:53:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:51:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessar spurningar frá hv. þm.
    Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Varðandi 43 milljarðana þá er þetta
    samstarfsverkefni á milli fjármálaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins.
    Mér skilst að það sé komin grunnskýrsla sem ég veit að annaðhvort stendur
    til eða er nú þegar búið að bjóða hv. fjárlaganefnd að skoða. Þetta varðar
    1,5% sem ég nefndi og við samþykktum á sínum tíma á leiðtogafundinum og
    við erum að vinna okkur upp í það. Ég held að við séum komin upp í ríflega
    0,9% eða tæp 1%. En þetta byggir á grunnvinnu hjá fjármálaráðuneytinu og
    utanríkisráðuneytinu og að sjálfsögðu verður þetta kynnt fjárlaganefnd og
    líka utanríkismálanefnd. Það er sjálfgefið mál og ég mun ýta á eftir því
    að það verði gert. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan var það seinni spurningin hjá hv. þingmanni: Já, varðandi
    umsóknina. Þetta er alveg skýrt. Við erum í sömu stöðu og áður en við
    fórum í þjóðaratkvæðagreiðsluna. Við erum ekki að breyta neinu frá þeirri
    stöðu eða frá því að bréfið var sent út á sínum tíma, árið 2015. Við erum
    bara í sömu stöðu og við höfum alltaf verið. Og ég tel það ekki þjóna
    hagsmunum Íslands að dvelja lengur við þetta. Ég tel miklu frekar að við
    eigum að horfa fram á við og fara í þau verkefni sem ég veit að hv.
    þingmaður hefur líka metnað fyrir og það er m.a. að passa upp á og gæta að
    EES-samningnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>